Svona verður verkfalli starfsmanna Reykjavíkurborgar háttað

Eins og flestum er kunnugt hefst verkfall nokkurra starfsstétta hjá Reykjavíkurborg á morgun en um er að ræða starfsmenn í umönnunarstörfum velferðardeildar Reykjavíkurborgar sem og starfsmenn á leikskólum. Efling hefur sent frá sér tilkynningu þar sem stéttarfélagið hvernig verkfallinu er háttað en fyrirkomulagið er eftirfarandi:


Deild lokar þegar og ef deildarstjóri er félagsmaður/kona í Eflingu.

Óheimilt er að færa starfsmenn á lokaðri deild sem eru í öðrum stéttarfélögum yfir í störf á öðrum deildum.

Afleysing er eingöngu heimil í upprunalegum tilgangi (undirbúningur, veikindi) en ekki til að ganga í störf starfsfólks í verkfalli.

Barn með sérþarfir sem er á deild sem ekki er lokuð vegna verkfalls getur sótt leikskólann þótt Eflingarstarfsmaður sem venjulega sinnir viðkomandi barni sé í verkfalli

Þetta þýðir að:

Ef barnið er á deild þar sem deildarstjórinn er Eflingarstarfmaður þá er barnið heima.

Ef barnið er á deild þar sem deildarstjórinn er í öðru stéttarfélagi þá getur barnið mætt þrátt fyrir að Eflingarstarfsmaður hafi sinnt barninu, en sú þjálfun sem Eflingarstarfsmaður hefur verið að sinna með barninu fellur niður á meðan verkfall stendur.

Tilhögun við umönnunarstörf á Velferðarsviði Reykjavíkurborgar

Efling- stéttarfélag hefur fallist á að veita undanþágu til að hægt sé að sinna nauðsynlegri félags- og öryggisþjónustu á Velferðarsviði. Áréttað er að ekki hefur að öllu jöfnu verið veitt undanþága vegna þrifa og tiltekar og er öðrum starfsmönnum óheimilt að sinna þessum störfum.

Verkfallsbrot

Einungis æðstu stjórnendum rekstrareininga er heimilt að ganga í störf annarra.

Dæmi um æðstu stjórnendur eru leikskólastjóri og forstöðumaður stofnunar.

Dæmi um rekstrareiningu er leikskóli með fleiri en eina starfsstöð.

Almennir starfsmenn sem ekki eru í verkfalli mega sinna sínum reglubundnu verkefnum en ekki öðrum eða fleirum verkefnum

Dæmi um verkfallsbrot almennra starfsmanna sem ekki eru í verkfalli sbr. framangreint:

Starfsmaður vinnur lengri vinnudag en vanalega.

Starfsmaður sinnir verkefnum sem hann alla jafna gerir ekki (gengur í störf annarra)

 Starfsmaður afsalar sér kaffitímum eða matartímum.

Stjórnandi sem beinir fyrirmælum/beiðnum til undirmanna sinna sem geta falið í sér eitthvað framangreint er verkfallsbrjótur.

Efling-stéttarfélag krefst þess að réttur sinn til að berjast fyrir kaupi og kjörum sé virtur af öllum hlutaðeigandi og minnir á ákall annarra stéttarfélaga til sinna félagsmanna að ganga ekki í störf Eflingarfólks. Efling-stéttarfélag skorar á hvern þann sem telur verkfallsbrot hafa verið framið að tilkynna slíkt til félagsins með tölvupósti á verkfallsbrot@efling.is eða í s. 5107500.

Efling-stéttarfélag mun sinna verkfallsvörslu eins og við verður komið á meðan á verkfalli stendur.

Minnt er á að verkfallsréttur er grundvallarréttur vinnandi fólks og ber að meðhöndla hann sem slíkan af öllum hlutaðeigandi. Markmið verkfalla er að knýja aðila til samninga með því að leggja niður störf að hluta eða öllu leyti og lögum samkvæmt er þeim sem verkfallsboðun beinist gegn, óheimilt að stuðla að því að afstýra henni með nokkrum hætti. Stjórnandi sem beinir því til starfsmanna að taka að sér nýjar og/eða útvíkkaðar skyldur sökum verkfalls sem skollið er á, er með því að fremja verkfallsbrot.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila