Fríverslunarsamningur EFTA og aðildarríkja Mercosur undirritaður

Samninganefndir EFTA og Mercosur í Buenos Aires í gær

Samningar hafa nú náðst um fríverslun milli EFTA-ríkjanna fjögurra og aðildarríkja Mercosur, Argentínu, Brasilíu, Úrúgvæ og Paragvæ. Með samningnum lækka tollar á bróðurpart þeirrar vöru sem flutt er út frá Íslandi. Nær allar sjávarafurðir sem Ísland flytur út munu njóta fulls tollfrelsis, sumar frá gildistöku samningsins en aðrar að loknum mislöngum aðlögunartíma.

Við höfum lagt mikla áherslu á að ljúka samningaviðræðum við Mercosur-ríkin og það er ánægjulegt að sá samningur sé nú í höfn. Markaðsaðgangur fyrir sjávarafurðir er sérstaklega mikilvægur fyrir okkur og hann eykst umtalsvert með þessum samningi,“ sagði Guðlaugur Þór.

Ég tel að við getum verið mjög sátt við þennan samning, sérstaklega þar sem hann er ekki síðri en sá sem Mercosur hefur nýlega samið um við Evrópusambandið.“

Viðskipti Íslands og Mercosur eru talsverð. Á síðasta ári nam vöruútflutningur til Mercosur um 1,5 milljarði og vöruinnflutningur til Íslands frá ríkjum Mercosur nam um 24 milljörðum. Í innflutningi til Íslands vegur áloxíð langþyngst en það er þegar tollfrjálst

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila