Áskoranir sem alþjóðaviðskiptakerfið stendur frammi fyrir vegna afleiðinga heimsfaraldursins og innrásar Rússlands í Úkraínu og yfirstandandi fríverslunarviðræður EFTA-ríkjanna voru til umfjöllunar á ráðherrafundi EFTA sem lauk í Borgarnesi síðdegis. Þá var fríverslunarviðræðum við Taíland og Kósovó ýtt úr vör. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum sem markar lok eins árs formennsku Íslands í EFTA samstarfinu.
Ráðherrarnir fordæmdu innrás Rússlands í Úkraínu og lýstu yfir áhyggjum af áhrifum hennar á fæðuöryggi í heiminum. Komu þeir sér saman um að leita leiða til að styðja Úkraínu, meðal annars með þátttöku í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Utanríkisráðherra gerði grein fyrir ákvörðun ríksstjórnarinnar við að fella niður tolla á vörum frá Úkraínu í eitt ár en Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í síðustu viku.
„Það var afar ánægjulegt og mikilvægt að ná að hitta fulltrúa hinna EFTA-ríkjanna,“ segir Þórdís Kolbrún. „Á tímum sívaxandi alþjóðlegrar óvissu, og vegna innrásar Rússlands í Úkraínu, er mikilvægt að standa vörð um EFTA samstarfið og skuldbindingar okkar til að vinna saman að friði og opnum utanríkisviðskiptum.“
Staða yfirstandandi fríverslunarviðræðna EFTA voru einnig til umræðu á fundinum en með gildistöku fríverslunarsamnings við Indónesíu á síðasta ári nær fríverslunarnet EFTA nú til fjörutíu ríkja eða ríkjasvæða. Jákvæð skref voru tekin í átt að frekari útvíkkun netsins þegar nýjum fríverslunarviðræðum við Taíland og við Kósovó var ýtt úr vör að viðstöddum viðskiptaráðherra Kósovó, Rozeta Hajdari og viðskiptaráðherra og varaforsætisráðherra Taílands, Jurin Laksanawisit. Í tilkynningu segir að bæði ríkin séu mikilvægir samstarfsaðilar EFTA-ríkjanna en viðskipti við Kósovó hafa aukist verulega á síðustu tuttugu árum og viðskipti við Taíland hafa á þessum tíma þrefaldast. Þá funduðu ráðherrarnir með aðstoð fjarfundarbúnaðar með Sergiu Gaibu, ráðherra efnahagsmála í Moldóvu til að fara yfir stöðu fríverslunarviðræðna sem stefnt er á að ljúka á þessu ári.
Þá segir í tilkynningunni að mikilvægi sjálfbærnisjónarmiða í fríverslunarviðræðum hafi aukist undanfarin ár. EFTA-ríkin fylgist með virkum hætti með framkvæmd sjálfbærniákvæða í fríverslunarsamningum og hefur samstarf við ráðgjafanefndir EFTA verið eflt í tengslum við þá vinnu.
Í tengslum við ráðherrafundinn áttu ráðherrarnir fund með þingmannanefnd og ráðgjafanefnd EFTA þar sem staða fríverslunarviðræðna og þróun EES-samningsins voru rædd. Um er að ræða mikilvægan og ganglegan vettvang til skoðanaskipta og á milli ráðgjafanefndanna og ráðherranna en samstarf EFTA-ríkjanna við nefndirnar hefur verið að styrkjast á síðustu árum.
Auk Þórdísar Kolbrúnar sátu fundinn: Dominique Hasler, utanríkisráðherra Liechtenstein, Janicke Andreassen, aðstoðar viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs og Marie-Gabrielle Ineichen-Fleisch, ráðuneytisstjóri í efnahagsmálaráðuneyti Sviss.