Könnun: Vilja ekki að gróðurhvelfing rísi í Elliðaárdal

Elliðaárdalur

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að gróðurhvelfing rísi í Elliðaárdal.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Vilt þú að gróðurhvelfing verði byggð í Elliðaárdal.

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Nei 88,1%

Já 10,2%

Hlutlaus 1,7%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila