Reykjavíkurborg hefur lagt fram til kynningar endurskoðað deiliskipulag Elliðaárdals en deiliskipulagið var kynnt á fundi skipulags og samgönguráðs Reykjavíkurborgar í gær. Fram kemur í tilkynningu að hið endurskoðaða deiliskipulag byggi á eldra deiliskipulagi sem samþykkt var árið 1994. Í tillögunni eru skilgreind níu verkefni sem falla innan þess ramma sem deiliskipulagið byggir á en verkefnin eru:
- Skilgreina aðalleiðir notendahópa um svæðið
- Bæta tengingar göngu- og hjólreiða; meta stígakerfi og mögulega þörf á nýjum stígum og brúm yfir árnar.
- Meta og endurskoða afmörkun hverfisverndarsvæðis og skilgreina í skipulagi.
- Vinna ítarlega náttúrufarsúttekt, þar með talið kortleggja jarðminjar, lykilvistgerðir, gróðurlendi og búsvæði dýra, einkum fugla. Meta verndargildi náttúruminja og leggja fram tillögur að verndarsvæðum.
- Vinna heildstæða fornleifaskýrslu og húsakönnun fyrir dalinn samhliða skipulagsvinnunni.
- Skilgreina rjóður og áningastaði
- Vinna með Orkuveitunni að ákvörðun um hreinsun ofanvatns úr götum áður en því er hleypt í árnar
- Taka saman upplýsingar um veiðistaði og aðgengi að þeim.
Þá segir í tilkynningunni að við deiliskipulagið séu þrír liðir hafðir að leiðarljósi við útfærslur skipulagsins en þeir liðir eru:
- Náttúra og lífríki
- Útivist og upplifun
- Menning og arfleið
Þá kemur fram í tilkynningunni að gert sé ráð fyrir göngustíg bæði vestan og sunnan megin dalsins alla leið frá botni hans. Sjá nánar með því að smella hér.