Erilsöm helgi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu

Þrátt fyrir að flestir hafi lagt land undir fót um verslunarmannahelgina þá ber verkefnalisti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu það sannarlega ekki með sér og var helgin þar á bæ mjög annasöm.

Nítján líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu, þar af tvær alvarlegar. Þá var farið í fjórtán útköll vegna heimilisofbeldis. Tíu innbrot voru tilkynnt um helgina og var helmingur þeirra í bifreiðar og geymslur, en eitt í íbúðarhúsnæði. Tvö rán voru enn fremur framin í umdæminu.

Þrjátíu og sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í umdæminu um verslunarmannahelgina. Þá var á fjórða tug ökumanna staðinn að hraðakstri á helstu vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Tveir þeirra voru á ofsahraða, eða tæplega 160, en báðir þurfa að sæta sviptingu ökuréttinda og borga rúmlega 200 þúsund kr. í sekt.

Loks má nefna að höfð voru afskipti af hátt í fimmtíu ökutækjum sem öllum var lagt ólöglega í umdæminu um verslunarmannahelgina og bíður eigenda/umráðamanna þeirra sekt fyrir vikið.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila