Erum að tapa fullveldinu smátt og smátt vegna veru okkar í EES

Eyjólfur Ármansson lögfræðingur og sérfræðingur í Evrópurétti

Vera Íslands innan EES án þess að stjórnvöld spyrni við fótum þegar þaðan koma ákvarðanir sem ekki ganga upp fyrir Ísland er að valda því að Ísland er að tapa fullveldi sínu smátt og smátt. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Eyjólfs Ármannssonar lögfræðings og sérfræðings í Evrópurétti í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur.

Eyjólfur segir að benda megi á nýleg dæmi þar sem stjórnvöld drógu lappirnar í því að gæta að hagsmunum landsins gagnvart EES, en það dæmi sé orkupakkamálið umdeilda, þar hefðu stjórnvöld brugðist með því að biðja ekki um undanþágur.

það er mjög erfitt að vinda ofan af því núna, því nú er fjórði pakkinn að koma en það sem ég er að benda á er að það sem er að gerast er að við erum smám saman að tapa frá okkur fullveldinu, fyrst er það fjármálastofnun Evrópu sem er yfirstofnun sem við beygjum okkur undir, svo kemur orkustofnun Evrópu og svo kemur næsta stofnun og svo koll af kolli, svona kemur þetta til með að þróast, við missum fullveldið smátt og smátt„,segir Eyjólfur.

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila