Inga Sæland formaður og þingmaður Flokks fólksins og Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður flokksins hafa lagt fram þingsálytkunartillögu þess efnis að umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið verði dregin til baka.
Í tillögunni segir að ákveðin óvissa sú um stöðu umsóknarinnar, hvort Evrópusambandið líti svo á hvort umsóknin hafi verið dregin til baka með bréfi Gunnars Braga Sveinssonar þáverandi utanríkisráðherra sem hann sendi Evrópusambandinu árið 2015. En eins og kunnugt er voru viðbrögð Evrópusambandsins við bréfinu á þann veg að mjög óljóst var hvort ESB hafi í raun litið á efni bréfsins sem afturköllun á aðildarumsókn Íslands í Evrópusambandið.
Þá segir í tillögunni að hún sé sett fram til þess að tryggja að Ísland dragi umsókn sína að Evrópusambandinu til baka. Lesa má þingsályktunartillöguna með því að smella hér.