Evrópusambandið hefur sett á laggirnar nýjan sjóð sem ber heitið Fjölmiðla og upplýsingasjóðurinn en sjóðurinn er sagður eiga að berjast gegn falsfréttum. Þó eru ekki margir sem hafa mikla trú á þetta sé raunverulegt markmið sjóðsins. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Gústafs Skúlasonar fréttaritara í Stokkhólmi í þættinum heimsmálin, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar.
Sjóðurinn er stofnaður vegna þess að það var mat Evrópusambandins að samfélagsmiðlar hafa þótt að mati sumra mjög slappir við að taka á falsfréttum og falsupplýsingum. Aftur á móti eru þeir talsvert fleiri sem hafa sett fram harða gagnrýni á samfélagsmiðla sem afa þótt ganga ansi langt í ritskoðun og telja yfirlýstan tilgang sjóðsins einungis yfirvarp til þess að réttlæta ritskoðun.
Það hefur vakið að stórfyrirtæki eins og Google ætla að greiða inn í þennan sjóð 29 milljónir dollara. Sjóðnum verður svo úthlutað milli landa innan ESB og EFTA og því ljóst að ritskoðunarsjóður Google mun ná hingað til lands. Hverjar birtingarmyndirnar verða eða hver muni ráðstafa fjármagninu hérlendis er enn óráðið.
Hlusta má á viðtalið hér að neðan