Forseti ESB-þingsins lét fjarlægja fána heimalanda þingmanna frá þingsætum þeirra og hefur það minnst sagt kveikt reiði meðal margra þingmanna.
„Þetta er svakalegt” skrifaði Peter Kofod þingmaður danska Folkepartiet á facebook og birtir mynd sem tekin var af honum á fyrsta degi á þinginu.
„Hvernig í ósköpunum hagar ESB-elítan sér? Hvaðan kemur hatrið ykkar? Hverjir haldið þið eiginlega að þið séuð með því að haga ykkur svona? ESB er að þróast í alríki – þjóðríki og sjálfsákvörðunarréttur eru þrándur í götu búrókratanna og drauma þeirra og annarra aðdáenda ESB. Þetta er svakalegt!”
Nigel Farage, flokksleiðtogi Brexit flokksins tísti að breskir fánar þingmanna flokksins voru fjarlægðir á ESB-þinginu að skipun þingforseta.
„Þjóðleg einkenni eru núna bönnuð. Guði sé lof að við erum að yfirgefa ESB.”