Könnun: Meirihluti ætlar að ferðast innanlands í sumar

Meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu ætla að ferðast innanlands í sumar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ætlar þú að ferðast innanlands í sumar?

Niðurstaðan var eftirfarandi:


Já 62,1%

Nei 30,5%

Hlutlaus 7,4%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila