Ferðamálastofa ítrekar við ferðaþjónustufyrirtæki að fara að lögum og reglum við gosstöðvarnar

Ferðamálastofa hefur sent frá sér tilmæli til ferðaþjónustufyrirtækja sem bjóða upp á ferðir á gossvæðið við Fagradalsfjall að fara að öllu eftir fyrirmælum og leiðbeiningum lögreglu og björgunarsveita á staðnum. Mikilvægt er að gæta í öllu öryggis ferðamanna og það er helst tryggt með því að farið sé eftir þeim reglum sem settar eru um umferð á svæðinu.

Sérstaklega er vakin athygli á að allur akstur að gosstöðvunum er ólöglegur utan vega akstur hvort sem um er að ræða bíla, mótorhjól eða önnur vélknúin ökutæki nema viðkomandi hafi sérstaka undanþágu frá banni náttúruverndarlaga.

Þá er ítrekað að öllum ferðaþjónustufyrirtækjum er sem fyrr skylt að vera með gildandi öryggisáætlun

Rétt er að taka fram að aðgengi að gosstöðvunum er lokað sem stendur vegna veðurs og verður staðan endurmetin á morgun um hvort hægt verði að opna þá, því ætti enginn að hyggja á ferðalög á svæðið í dag.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila