Fjármálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu vegna umræðu, sem byggist á frétt Vísis um ríflegar launahækkanir þingmanna og annara embættismanna þar sem farið er yfir hvað sé rétt í þessum efnum en í tilkynningunni segir meðal annars
“ 27. mars sl. birtist á vef ráðuneytisins tilkynning um að Alþingi hefði samþykkt að hækkun sem samkvæmt lögum skyldi taka gildi 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. janúar 2021.
Um var að ræða breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru. Í kjölfar þess að frestunin var samþykkt barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu erindi frá embætti forseta Íslands þar sem þess var óskað að launahækkun forseta yrði einnig frestað til næstu áramóta.“
Þá er einnig greint frá því í tilkynningunni að laun kjörinna fulltrúa og embættismanna hafi ekki hækkað síðan í október 2016
“ Lög um launafyrirkomulag þjóðkjörinna og æðstu embættismanna ríkisins voru samþykkt í júní í fyrra í kjölfar brottfalls laga um kjararáð. Þar er kveðið á um að laun skuli taka breytingum 1. júlí ár hvert, annars vegar í samræmi við launavísitölu Hagstofunnar vegna almenna og opinbera markaðarins, og þróun launa skv. lögum hins vegar.
Samkvæmt lögunum hefðu laun þessara hópa átt að hækka 1. júlí í fyrra en Alþingi samþykkti að fresta því um 6 mánuði í tengslum við gerð lífskjarasamninga. Tók sú hækkun því gildi 1. janúar 2020, skv. lögboðnum fyrirmælum í takt við launavísitölu ársins 2018, sem segir til um um 6,3% hækkun. Laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna höfðu ekki verið hækkuð síðan í október 2016.
Því miður urðu á mistök við hefðbundna launaafgreiðslu í janúar sem leiddu til þess að breytingin kom ekki til framkvæmda þá eins og lögin mæla fyrir um. Úr þessu verður bætt við launakeyrslu um næstu mánaðamót.“