Hægt að áætla fjárhæðir stuðningslána og lokunarstyrkja í reiknivél á Ísland.is

Opnað hefur verið sérstaka reiknivél þar sem fyrirtæki geta nú kannað hvernig þau falla undir úrræði sem stjórnvöld hafa kynnt vegna Covid-19 í reiknivél á vefnum Ísland.is. Í tilkynningu frá Fjármálaráðuneytinu segir að senn verði opnað fyrir móttöku umsókna um lokunarstyrki og stuðningslán á vefnum, auk þess sem þar er að finna upplýsingar um viðbótarlán.

Reiknivélin leiðir fyrirtæki áfram í gegnum spurningalista þar sem þau geta mátað sig við úrræðin og fengið vísbendingu um stöðu sína, en endanleg niðurstaða liggur fyrir að loknu umsóknarferli. Einnig býðst fyrirtækjum að skrá sig á póstlista en Stafrænt Ísland sendir út tilkynningu um leið og verður opnað fyrir umsóknir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila