Neyðarlínan vinnur nú hörðum höndum að því að gera úrbætur á 64 fjarskiptastöðvum víða um land með auknu varaafli og að fjölga færanlegum vararafstöðvum. Þar af eru 36 fastar vararafstöðvar en annars staðar eru rafgeymar eða tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar. Tilgangurinn er að tryggja rekstraröryggi í fjarskiptum eftir mikil óveður sem gengu yfir landið í vetur.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynnti nýverið að verkefnið fengi 125,5 milljóna kr. fjárveitingu á þessu ári á vegum fjarskiptasjóðs í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt. Fjárveitingarnar eru veittar á grundvelli fjárfestingaátaks stjórnvalda til að sporna gegn samdrætti í hagkerfinu í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru.
„Óveðrið sem gekk yfir landið í vetur afhjúpaði marga veikleika í grundvallarkerfum okkar, rafmagnskerfinu og fjarskiptakerfinu. Sú vinna sem er hafin er hjá Neyðarlínunni með stuðningi fjarskiptasjóðs er mikilvægt skref í að tryggja örugg samskipti um allt land,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.