Fjórða valdið tekið úr sambandi í faraldrinum

Fjórða valdið, fjölmiðlar sem oft eru nefndir svo voru í raun teknir úr sambandi í heimsfaraldrinum þegar fjölmiðlamenn var bætt á lista almannavarnadeildar yfir starfsfólk í framlínustörfum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Arnars Þórs lögmanns í þættinum Í leit að sannleikanum í dag.

Í þættinum las Arnar upp úr nýlegri grein hans og Svölu Magneu Ásdísardóttur blaðamanns og fjölmiðlafræðings þar sem fjallað er meðal annars um samruna valds og hvaða áhrif slíkur samruni getur haft.

Í grein Arnars og Svölu segir meðal annars að það sé mat þeirra að þegar þessi yfirfærsla fjórða valdsins yfir á lista almannavarnadeildar hafi orðið ákveðin vatnaskil, þeir hafi meðal annars fengið forgang að samfélagslegri þjónustu umfram aðra borgara landsins.

„fjölmiðlamönnum var snúið frá því að veita stjórnvöldum aðhald og þeir gerðir að samherjum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, landlæknis og sóttvarnalæknis. Fjórða valdið sem gagnrýnandi afl aðhalds var í reynd tekið úr sambandi“ segir í greininni.

Eignatengsl fjölmiðla við lyfjaframleiðendur kallar á sérstaka aðgæslu

Benda þau á að í ljósi eignarhalds stærstu fjölmiðla heims og eignartengsl þeirra við við stóra lyfjaframleiðendur blasi við að sérstakrar aðgæslu og aðhalds sé þörf hjá ríkisfjölmiðlum og opinberum eftirlitsstofnunum.

„í kórónuveirufaraldrinum virðast þessi mörk hafa máðst út og háskalegur samruni opinbers valds og alþjóðlegra stórfyrirtækja leitt lýðræðisógn yfir almenning í formi hræðsluáróðurs sem miðaði að því að samræma hegðun og þagga niður í efasemdarröddum. Þegar horft ef yfir atburðarrás síðustu tveggja ára birtist grafalvarleg mynd, sem í raun má kenna við lýðræðishrun. Þingræði var í raun afnumið og opinbert vald afhent sérfræðingum í allt of ríkum mæli, án viðunandi valdtemprunar og aðhalds“

Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila