Fjórir í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnamáls

Fjórir einstaklingar hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 17.ágúst næskomandi að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Farið var fram á gæsluvarðhaldið í þágu rannsóknar í stóru fíkniefnamáli á innflutningi á miklu magni af fíkniefnum.

Fjórmenningarnir voru handteknir í sameiginlegun aðgerðum lögreglu í gær en að þeim komu embætti lögregluliðanna á  höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um málið að sinni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila