Forsetahjónin heimsækja Grænland

Guðni Th. Jóhannessonforseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú

Guðni Th.Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú héldi í dag til Nuuk á Grænlandi í opinbera heimsókn í boði Kim Kielsen forsætisráðherra Grænlands. 

Meðal annars munu forsetahjónin í dag heimsækja Þjóðminjasafn Grænlands og sækja að því loknu móttöku sem Þorbjörn Jónsson aðalræðismaður efnir til þeim til heiðurs en þar verða m.a. grænlenskir embættis- og stjórnmálamenn og fulltrúar fyrirtækja, sem átt hafa í samstarfi við íslensk fyrirtæki, auk Íslendinga sem búsettir eru í Nuuk.


Á morgun þriðjudag mun forseti eiga fund með forsætisráð­herr­anum. Þá munu forsetahjón heimsækja Háskóla Grænlands og ræða þar við starfsmenn og nemendur og halda í þjóðþingið Inatsisartut þar sem forseti á fund með Vivian Motzfeldt þingforseta.

Einnig mun forseti eiga fund með landstjóra Dana, Mikaela Engell, og sitja forsetahjónin svo hátíðarkvöldverð í boði forsætisráðherrans í Hans Egede húsinu.


Áður en heimsókninni lýkur á miðvikudaginn heimsækja forseta­hjónin Miðstöð loftslagsrannsókna í Nuuk, Kofoeds skólann og Royal Arctic Line sjóflutningafyrirtækið og eiga einnig fund með borgarstjóranum í Nuuk, Charlotte Ludvigsen.

Loks má nefna að forsetafrúin mun eiga fundi með Sara Olsvig, fv. ráðherra sem nú er verkefnisstjóri UNICEF, og með Aviâja Egede Lynge, umboðsmanni barna á Grænlandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila