Friðrik Krónprins Danmerkur sækir Ísland heim

Friðrik krónprins

Friðrik krónprins Danmerkur verður á Íslandi dagana 12.–13. október í opinberri heimsókn ásamt utanríkisráðherra Danmerkur Jeppe Kofod og sendinefnd. Í tilkynningu frá skristofu forseta Íslands segir að markmið ferðarinnar er að styrkja samstarf og viðskiptatengsl Íslands og Danmerkur á sviði sjálfbærra orkulausna.

Heimsókn krónprinsins hefst með kvöldverði honum til heiðurs á Bessastöðum kl. 18:30 þriðjudaginn 12. október. Morguninn eftir, miðvikudaginn 13. október, mun forseti flytja ávarp við setningu fundar dansk-íslensku sendinefndarinnar sem fram fer í Grósku hugmyndahúsi í Vatnsmýri. Síðar þann sama dag skoðar forseti danska varðskipið HDMS Triton sem nú liggur við höfn í Reykjavík. Skipið sinnir eftirliti á Norðurslóðum og fá forseti og krónprinsinn leiðsögn um skipið og störf áhafnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila