Utanríkisráðherra fundaði með NB8 og Visegrad-ríkjum

Frá fundinum í dag

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, tók í dag þátt í utanríkisráðherrafundi Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og Visegrad-ríkja. Visegrad ríkin eru Pólland, Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland. Afleiðingar COVID-19 heimsfaraldursins, efnahagsmál og þróun í þeim efnum í Evrópu voru til umfjöllunar.

Í ávarpi sínu á fundinum sagði Guðlaugur meðal annars að heimurinn stæði nú frammi fyrir nýrri alheimskreppu sem ætti sér enga hliðstæðu á þeim 75 árum, sem nú væru liðin frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þessi kreppa hefði víðtækar félags- og efnahagslegar afleiðingar. Ríki heims stæðu frammi fyrir margvíslegum áskorunum, þar sem mikilvægt væri að standa vörð um grunngildi eins og mannréttindi, lýðræði, réttarríkið og frjáls viðskipti, sem og friðhelgi yfirráðasvæðis.

Ljóst er að öryggisumhverfi Evrópu hefur tekið breytingum undanfarin ár. Kórónuveirufaraldurinn hefur bæði orðið til þess að styrkja böndin og efla samstarf þjóða, en einnig opnað augun fyrir því hvað væri hægt að gera betur. Í tengslum við faraldurinn er mikilvægt að vinna betur að því að tryggja grunngildi, eins og frið og öryggi, réttarríki og mannréttindi, þar með talið kvenna og stúlkna og hinsegin fólks. Því miður er það svo, að jafnvel í okkar heimshluta eru ákveðin merki um rof í þeirri samstöðu, að standa vörð um þessi sameiginlegu grunngildi,“ sagði Guðlaugur Þór.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila