Það er ekki nóg með að kórónupestin sé að kvelja Svía heldur halda glæpamennirnir ótrauðir áfram upptekinni iðju að drepa, skjóta, sprengja, stinga, skera, særa, ræna, berja og nauðga. Hér kemur smá samantekt frá þjóðhátíðardegi Íslands til júníloka frá „friðsæla” Svíþjóð. Ekki er hægt að telja alla glæpi upp og því eru nauðganir, rán og minni ofbeldisglæpir ekki taldir með hér, þótt sumir þessara glæpa séu hrottalegir eins og þegar verið er að ræna varnarlaus gamalmenni, nauðga unglingsstúlkum eða pína unglinga til niðurlægingar og hlýðni við glæpamenn:
17. júní
- Sprengjuárás í Uppsala á íbúðarhúsnæði um 23.00. Sprengjudeild lögreglunnar rannsakaði málið. Enginn handtekinn.
- Skotárás í Jakobsberg, Stokkhólmi, einn særður. Enginn handtekinn.
19. júní
- Sprengjuárás í Uppsala á íbúðarhúsnæði kl. 02.39. Enginn slasaðist. Enginn handtekinn.
20. júní
- Skotárás í Älvsjö Stokkhólmi, einn lífshættulega særður, þrír handteknir.
- Skotárás í Sollentuna N – Stokkhólmi, einn særður á sjúkrahús, enginn handtekinn.
25. júní
- Skotárás í Videdal Malmö skotið á einbýlishús, mildi að enginn í húsinu særðist. Enginn handtekinn.
26. júní
- Skotárás við lestarstöð i Älvsjö Stokkhólmi, þrír særðir, einn alvarlega. Sjö handteknir.
- Skotárás Eskilstuna enginn handtekinn, enginn særður. Lögreglan safnaði skothylkjum á staðnum. Eldri þora vart að fara út eftir atburðinn.
27. júní
- Skotárás Lindesberg, einn særður, enginn handtekinn
- Sprengjuárás í Malmö enginn særður, enginn handtekinn
29. júní
- Handsprengju kastað að íbúðarhúsi í Upplands Bro norðvestur af Stokkhólmi. Sprengingin náðist á myndband sem hefur verið deilt ótal sinnum á félagsmiðlum. Talið að árásin sé hefnd fyrir að fjölskyldufaðirinn hafði hringt í lögregluna og sagt frá glæpagengi araba sem herjar á íbúa Upplands Bro. 27. maí brunnu 18 bílar og grunsamlegur hlutur sem óttast var að væri sprengja staðsettur fyrir utan bæjarstjórnarskrifstofurnar.
- Skotárás Askimbaðið í Gautaborg tveir komu sjálfir til sjúkrahúss, skotið var á bíl, lögreglan leitaði að glæpamönnum með þyrlu
- Hnífaárás Haninge í Stokkhólmi, einn særður, enginn handtekinn
30. júní
- Skotárás Haninge í Stokkhólmi, einn alvarlega særður, tveir handteknir
- Skotárás Husby í Stokkhólmi, enginn særður, enginn handtekinn
1. júlí
- Hnífabardagi milli Afghana í Konungstrjágarðinum í miðborg Stokkhólms. Þrír særðir og einn þeirra dó af hnífstungum. Einn handtekinn grunaður um morðið, sá er áður dæmdur fyrir fleiri ofbeldisverk.
- Skotárás í Enskede Stokkhólmi, einn alvarlega særður, átta manns handteknir
Um leið og fréttin er skrifuð berast svo fréttir frá Tensta í N-Stokkhólmi af skotbardaga þar sem strætisvagn lenti í skotlínu óþekktra aðila. Ekki vitað hvort einhverjir særðust en vitað er að strætisvagnastjórinn slapp ómeiddur. Þá hefur verið einnig skotið á fleiri stöðum í Tensta.