Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur og hagfræðingur mun skipa eitt af oddvitasætum Frjálslynda lýðræðisflokksins í komandi kosningum í vor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem flokkurinn sendi frá sér í morgun.
Glúmur er með BA gráðu í stjórnmálafræði og hagfræði frá Háskóla Íslands, MSc gráðu í alþjóðasamskiptum og Evrópufræðum frá London School of Economics og MA gráðu í alþjóðasamskiptum og alþjóðaviðskiptum frá University of Miami.
Þá segir í tilkynningunni að Glúmur hafi meðal annars starfað hjá Fríverslunarsamtökum Evrópu, EFTA, Sameinuðu þjóðunum, International Relief and Development í Washington, ICEAID, Þróunarsamvinnustofnun Íslands, Íslensku friðargæslunni, Tryggingastofnun ríkisins og sem fréttamaður á RÚV og Stöð 2 auk þess að hafa starfað sem leiðsögumaður og sjómaður á Íslandi.
Í fréttatilkynningunni fylgir pistill frá Glúmi þar sem hann greinir frá því hvers vegna hann ákvað að fara í framboð en lesa má pistilinn hér að neðan:
„Þegar ég var ungur maður var ég oft spurður hvort ég ætlaði ekki í pólitík eins og afi og pabbi. Ég svaraði neitandi. Skyldi ég í pólitík væri það ekki út af ætterni mínu heldur einvörðungu eftir að ég hefði öðlast einhverja lífsreynslu og ástríðu fyrir því sem betur mætti fara í samfélagi okkar.
Ég átti vini sem dýrkuðu ákveðinn stjórnmálaflokk, fóru í lögfræði og beint í framboð án þess að vita nokkuð um hvað veröldin snerist og án skilnings á þjóðinni sem pólitíkusinn á að þjóna. Nú er ég eldri og finn mig knúinn til að gera eitthvað í málunum og leggja mitt af mörkum þegar staðan í þessu samfélagi er þannig að fjölskyldur teljandi á fingrum annarrar handar eiga landið til sjávar og sveita.
Einu sinni var talað um Ísland sem stéttlaust land. Það var firra þá en enn meiri firra nú og það sem verra er er að stærstu fjölmiðlar landsins eru í eigu sömu fjölskyldna og eiga landið. Ísland er eitt spilltasta ríki í norðri jarðar. Hvernig má slíkt vera í svo smáu samfélagi sem ætti í raun að vera fyrirmynd annarra samfélaga um jöfnuð og velferð? Ég hef val. Að sitja hjá og röfla á samfélagsmiðlum eða sigla úr vari og taka þátt og láta til mín taka. Ég vel síðari kostinn. Glúmur Baldvinsson“