Reykjavíkurborg setur sér grænan ramma vegna grænna skuldabréfa

Reykjavíkurborg hefur sett sér Grænan ramma (Green Bond Framework) vegna útgáfu grænna skuldabréfa, en Reykjavíkurborg var fyrst íslenskra fyrirtækja á íslenskum markaði til þess að gefa út slík bréf.

Með Græna rammanum sem settur var í fyrra og ekkert hefur verið fjallað um hingað til eru skilgreind nokkur atriði varðandi græna skuldabréfaútgáfu borgarinnar, en skilgreiningar rammans eru eftirfarandi:

  • Hvaða fjárfestingar geta fallið undir fjármögnun Reykjavíkurborgar með grænum skuldabréfum
  • Hvernig staðið er stjórnsýslulega að því að tryggja að einungis þau verkefni sem uppfylla kröfur Græna rammans verði fjármögnuð með grænum skuldabréfum
  • Hvernig staðið er að því að tryggja að fjármunirnir séu eyrnamerktir völdum grænum verkefnum og haldið aðskildum frá öðrum fjármunum
  • Hvernig staðið verði að skýrslugjöf um framkvæmdina
  • Hvernig staðið verði að staðfestingu ytri endurskoðenda
  • Hvernig fengin verði fagleg staðfesting á gæðum Græna rammans.


Nú þegar liggur fyrir staðfesting á Grænum ramma Reykjavíkurborgar frá CICERO (Center for International Climate Research) en flestir útgefendur grænna skuldabréfa í Evrópu leita til þeirra miðstöðvar sem er leiðandi í alþjóðlegum loftlagsrannsóknum og baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Samkvæmt mati CICERO fær Grænn rammi Reykjavíkurborgar hæstu einkunn, dökkgrænan (Dark Green), og allir undirflokkar og verkefni fá einnig dökkgræna einkunn.

Þá eru ýmis verkefni sem borgin hefur á áætlun sinni sem skilgreind eru sem verkefni sem falla undir græna rammann, en meðal verkefna eru til að mynda uppbygging Borgarlínu, lagning hjólreiðastíga og göngustíga, LED væðing götulýsingar, hleðslustöðvar fyrir rafbíla og fleiri verkefni sem talin eru spara orku og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Sjá nánar hér, hér , hér, hér og hér.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila