Gríðarleg aukning tilkynntra dauðsfalla 2021 vegna COVID-bólusetninga miðað við 2016-2020

Stóru fjölmiðlarnir vinna fyrir lyfjarisana og segja engin önnur úrræði vera til gegn Covid nema bólusetning.

Bandaríski hugsuðurinn birtir oft áhugaverðar greinar um málefni líðandi stundar. 16. júní skrifaði Antonio R. Chaves grein um hratt vaxandi dánartölur bólusettra. Sjá má á skýringarmyndum, hvernig staðan er. Vegna allra umræðna um flýti í framleiðslu COVID-bóluefna, samninga lyfjarisanna um að afsegja sér allri ábyrgð á bóluefnunum, fréttir um alvarlega aukaverkanir, andlát og sífellt háværari raddir vísindasamfélagsins um læknisfræðileg mistök, þá birtir Útvarp Saga hér lauslega þýðingu þessarra nýjustu upplýsinga um ástandið.

Antonio R. Chaves skrifar:

Fyrir mánuði lýsti Tucker Carlson Fox News áhyggjum af óvenju mörgum dauðsföllum tengdum COVID bóluefnunum. Áberandi „staðreyndarskoðendur“ börðu strax á trummur sínar og sögðu áhyggjur hans bæði „villandi“ og sýna „skort á samhengi.“ FactCheck.org gekk jafnvel lengra og sagði „það er rangt að gefa í skyn að dauðsföll, sem tilkynnt eru í gagnagrunn VAERS-kerfisins séu öll af völdum bóluefna,“ en Tucker Carlson fullyrti það aldrei.

Fréttasíðan Revolver birtir gröf (sjá myndir 4, 5 og 6 neðst á síðunni), sem sýna ótrúlega 3.000% hækkun á dauðsföllum sem tengjast COVID-bóluefnum. Því miður vantaði link með greininni á heimildina og vefsíðan „VAERS“ kerfisins er þunglamaleg. Sem betur fer birti breska dagblaðið Daily Exposé beinan link á gagnvirka vefsíðu CDC, svo ég er í eilífri þakkarskuld við þá. Ég varð svo hrifinn af vefsíðunni, að ég útbjó þriggja mínútna kennslumyndband. Deildu þessu myndbandi með lækninum þínum.

3.300% aukning það sem af er í ár miðað við 5 ár samanlagt á undan

Byggt á gögnum CDC, þá hafa dauðsföll tengdum COVID-bóluefnum og varanleg fötlun hækkað um 3.300% og 850% árið 2021 (mynd 1). Þetta er enn hærra en toppurinn sem Revolver setti upp tíu dögum fyrir fyrirspurn mína. Við erum sem stendur aðeins hálfnuð með árið 2021, þannig að þessi mismunur getur hafa tvöfaldast í desember.

Sumir munu afneita þessum myndum sem „tölfræðilegu ígripi“ vegna bólusetningar á eldra fólki, sem var nær dauðanum en aðrir. En þegar úrtakið er takmarkað við fólk yngra en 40 ára, þá hafa tilkynnt andlát þeirra og varanleg örorka aukist um 3.300% og 1.200% (mynd 2).

Láttu þetta meitlast inn: COVID-bóluefnin virðast vera að drepa og gera marga á besta aldri örkumla – einmitt það fólk sem síst er líklegt til að deyja úr COVID.

Einungis kjáni segði 1.000 – 3.000 % aukningu vera tilviljun

FactCheck.org bendir á að „allar þessar tilkynningar eru ekki staðfestar.“ En þar er verið að grípa í hálmstrá, því einungis kjáni myndi segja, að 1.000–3.000% aukning tilkynninga aukaverkana vegna bóluefnanna væri stórfelld aukning „tilviljana“ eða vegna rangra tilkynninga.

2:07 mín. inn í kennslumyndbandið sést 2.600% aukning á dauðsföllum sem gerast á bólusetningardeginum. Myndin sem sýnir þetta sést á 2.30 mínútu. Hversu margar „tilviljanir“ geta gerst á einum bólusetningardegi?

Flest dauðsföll bóluefna verða á fyrstu tveimur vikunum en verulegur fjöldi andláta á sér stað tveimur mánuðum síðar (mynd 3). Kannski eru fleiri af þessum síðari dauðsföllum „tilviljun“ en þetta línurit sýnir aðeins tímann fram að andláti en ekki ferlið. Hversu mörg þessara fórnarlamba þjáðust hægfara, langvarandi dauða skömmu eftir að hafa verið bólusett?

Hvernig sefur þetta fólk á nóttunni?

Eins og þú kannski veist, þá er ekkert af COVID-19 bóluefnum samþykkt af FDA – „Food & Drug Administration“ og skv. Us.Code 360bbb þarf að vera algjör skortur á „sambærilegum eða fullnægjandi valkostum“ til að veita „aukinn aðgang að ósamþykktum meðferðum.“ Með öðrum orðum, þá riftir tilvist öruggra valkosta „neyðarheimildunum“ fyrir COVID bóluefni.

Þau öfl, sem vita að þau geta ekki að eilífu bælt niður sannleikann um aðrar öruggar aðferðir eins og ivermektín og hýdroxýklórókín, sýna stöðugt ofsafengnari viðleitni til að fá fleiri bólusetta. Hvernig sefur þetta fólk á nóttunni?

Í sterkri lokasenu klassísku kvikmyndarinnar „Dómurinn í Nuremberg“ iðraðist stríðsglæpamaðurinn Ernst Janning við Haywood dómara: „Þetta fólk … þessar milljónir manna … Ég vissi aldrei að kæmi að þessu.“ Dómarinn svaraði kuldalega: „Herra Janning, þetta gerðist í fyrsta skipti sem þú dæmdir mann til dauða sem þú vissir að var saklaus.“

Allir læknar sem taka þátt í þessum ljóta leik eru ekkert betri en Ernst Janning. Þeir geta ekki á trúverðugan hátt falið sig á bak við vanþekkingu, þegar þeir kjósa að snúa blinda auganu að vandanum og sannleikurinn blasir við.

Tilkynningar vegna COVID-bóluefna í samanburði við önnur bóluefni s.l. 30 ár

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila