Grímuskylda í staðnámi háskóla og framhaldsskóla

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út uppfærðar leiðbeiningar til framhalds- og háskóla, í ljósi nýrra tilmæla sóttvarnarlæknis um grímunotkun í staðnámi í framhalds- og háskólum á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt nýju leiðbeiningunum er skylt fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk framhalds- og háskóla að nota grímur í skólabyggingum og í öllu skólastarfi. Fram kemur í tilkynningur að Menntamálaráðuneytið hafi í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið tryggt framhaldsskólum aðgang að 20-25.000 grímum sem Landspítalinn annast útsendingu á í fyrramálið, en með fyrirkomulaginu sé verið að tryggja að staðnám verði að mestu leyti óbreytt.

Mat um grímunotkun í skólum utan höfuðborgarsvæðisins verður háð aðstæðum í hverju tilfelli fyrir sig, út frá aðstöðu hvers skóla og útbreiðslu smits í nærsamfélaginu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila