Tónlistarkonan glaðværa Guðný María Arnþórsdóttir sem mikið hefur látið að sér kveða í tónlistinni hefur þurft að ganga í gegnum afar erfiða lífsreynslu á lífsleiðinni, en Guðný og börnin hennar hafa verið beitt umgengnistálmunum í áratugi. Guðný María var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag en þar sagði Guðný sögu sína sem nær sem fyrr segir áratugi aftur í tímann.
Guðný segist hafa farið að drekka talsvert á yngri árum en síðar ákveðið að fara í meðferð en þá kynnist hún manni sem reyndist síðar vera drykkfeldur ofbeldismaður en Guðný lét ekki deigan síga og reyndi í alls tíu skipti koma manninum i meðferð og eignaðist með honum börn, svo þegar þau skildu fór hann fram á forræði barnanna og hafði betur vegna þess að hann var betur staddur fjárhagslega á þeim tíma.
Áður hafði Guðný María séð bæði manninum og heimilinu öllu farborða upp á eigin spýtur. Guðný segir að þegar tálmanir hafi hafist og fyrverandi maðurinn hafi haldið henni frá börnum sínum hafi systkini ekki stutt hana eins og hún hefði viljað, heldur þvert á móti hafi þau snúist gegn henni og lagt steina í götu hennar.
Í öll þessi ár hefur Guðný María barist fyrir réttindum sínum og barnanna og í dag á Guðný einnig sjö barnabörn sem henni langar til að kynnast
“ það er ekki einu sinni hringt í mig þegar ég eignast barnabarn„, segir Guðný.
Hlusta má á viðtalið við Guðnýju Maríu í spilaranum hér að neðan.