Nefnd skipuð um menntun hjúkrunarfræðinga og fjölgun í stéttinni

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að fjalla um menntun hjúkrunarfræðinga og gera tillögur um aðgerðir sem leitt geta til þess að fleiri útskrifist með hjúkrunarfræðimenntun.

Á fundi ráðherranefndar um samræmingu mála 15. ágúst síðastliðinn kynnti heilbrigðisráðherra tillögur sínar um starfshópa til að fjalla um menntunarmál heilbrigðisstétta. Á fundinum voru einnig rædd áform um samstarf heilbrigðisráðuneytis og mennta- og menningarmálaráðuneytis á þessu sviði, meðal annars með stofnun starfshóps eins og hér um ræðir varðandi menntun hjúkrunarfræðinga. Fram kemur í tilkynningu að nefndinni sé ætlað að skila tillögum sínum fyrir 1.mars næstkomandi.

Formaður starfshópsins er Vilborg Ingólfsdóttir, skipuð af heilbrigðisráðherra. Aðrir nefndarmenn eru:

  • Herdís Gunnarsdóttir, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
  • Þórhalla Sigurðardóttir, tilnefnd af Sjúkrahúsinu á Akureyri
  • Helga Gottfreðsdóttir, tilnefnd af Ljósmæðrafélagi Íslands
  • Margrét Hrönn Svavarsdóttir, tilnefnd af Heilbrigðisvísindasviði Háskólans á Akureyri
  • Herdís Sveinsdóttir, tilnefnd af Hjúkrunarfræðideild Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Hrund Scheving Thorsteinsson, tilnefnd af Landspítala
  • Gísli Kort Kristófersson, tilnefndur af Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
  • Starfsmaður hópsins er Brynhildur Magnúsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila