Smit hefur verið staðfest á öldrunarspítalanum Landakoti en smitin hafa greinst bæði hjá sjúklingum spítalans og starfsmönnum. Þetta kom fram á blaðamannafundi Almannavarna, sóttvarnalæknir og landlæknis í dag. Fram kom á fundinum að vegna smitsins hefur verið hætt að taka á móti sjúklingum til innlagnar.
Spítalinn sinnir mikilvægu hlutverki þegar kemur að endurhæfingu aldraðra en þar eru einnig starfræktar legudeild og dagdeild. Einnig kom fram á fundinum að ekki er vitað hvort eða hvernig starfsemi á spítalanum verði skert vegna smitsins.
Þá hefur Rjóðrinu á Barnaspítala Hringsins einnig verið lokað vegna smits í öðrum hluta spítalans.
Í dag kemur fram á vefnum Covid.is að staðfest smit hér á landi séu orðin 802 en þar af hafa 82 sjúklingar náð bata. Þá eru nú 17 manns á sjúkrahúsi, 3 á gjörgæslu, 720 í einangrun og 9.989 í sóttkví.