Samið um heimahjúkrun langveikra barna

Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við sjö hjúkrunarfræðinga í samstarfi við Landspítalann um að sinna heimahjúkrun langveikra barna á höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn hefur verið undirritaður af samningsaðilum og staðfestur af heilbrigðisráðherra. Frá þessu er sagt á vef Sjúkratrygginga Íslands. 

Hjúkrunarfræðingarnir sem taka að sér þjónustuna störfuðu áður hjá Heilsueflingarmiðstöðinni við hjúkrun barna í heimahúsum. Landspítalinn mun leggja til teymisstjóra sem tekur við öllum beiðnum um hjúkrun barna og kemur þeim í viðeigandi farveg.

Samningurinn gildir í eitt ár og verður samningstíminn nýttur til að vinna að framtíðarskipan þjónustunnar meðal annars með það fyrir augum að samþætta hana við aðra þjónustu sem styður við búsetu í heimahúsum.

Í tilkynningu Sjúkratrygginga Íslands segir að varðandi geðhjúkrun barna hafi komið fram ábendingar frá fagaðilum um að geðheilbrigðisþjónustu við börn væri best sinnt af þverfaglegu teymi en unnið er að því að koma til móts við þær athugasemdir með viðeigandi hætti. 

Þá eru hafnar séu viðræður Sjúkratrygginga Íslands við við helstu fagaðila á þessu sviði í því augnamiði að endurskilgreina þjónustuna út frá faglegum sjónarmiðum og þörfum notenda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila