Spornað við lyfjahamstri með reglugerð

Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem felur í sér takmarkanir á afhendingu lyfja í þeim tilgangi að koma í veg fyrir hamstur á lyfjum en nokkuð hefur borið á slíku hamstri að undanförnu. Í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu segir að fólk með fjölnota lyfseðla hafi leyst út margar afgreiðslur samtímis eða með skömmu millibili. Mikilvægt sé að fólk hamstri ekki lyf. Slík háttsemi getur valdið tjóni með því að skapa lyfjaskort og þannig stefnt heilsu og jafnvel lífi fólks í hættu að óþörfu.

Heilbrigðisráðuneytið hefur jafnframt sent læknum og lyfjafræðingum bréf þar sem reglugerðarbreytingin er kynnt og óskað eftir samvinnu um framkvæmdina. Í bréfinu segir meðal annars:

Við þær sérstöku aðstæður sem uppi eru í samfélaginu í dag leitast heilbrigðisyfirvöld hér með eftir samvinnu við heilbrigðisstarfsfólk sem ávísa og afgreiða lyf samkvæmt reglugerð nr.

1266/2017, um ávísun og afgreiðslu lyfja. Meðfylgjandi breyting á ofangreindri reglugerð til bráðabirgða hefur verið undirrituð af ráðherra og verður birt í dag. Tilgangur með setningu hennar er að koma í veg fyrir að fólk geti hamstrað margra mánaða lyfjabirgðir sem leitt getur til þess að aðrir muni líða lyfjaskort.“

Lyfjastofnun og landlæknir hafa áður beint tilmælum til almennings um að draga úr lyfjahömstrun. Með reglugerðarbreytingunni nú eru lögð til ákvæði til bráðabirgða sem loka á að fleiri en ein lyfjaávísun á sama lyf og styrkleika sé gild hverju sinni í lyfjaávísunargáttinni. Jafnframt er lagt til að Lyfjastofnun geti takmarkað afgreiðslu lyfja þegar sérstakar ástæður sem varða almannaheill og lýðheilsu mæla með því.

Lyfjabirgðir hafa verið auknar í landinu í kjölfar kórónaveirufalaldursins. Það er mat heilbrigðisyfirvalda að birgðir séu nægar ef þeim er rétt skipt.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila