Nýjar reglur um sóttvarnir sem taka gildi 14.ágúst birtar

Heilbrigðisráðherra hefur birt nýjar reglur um sóttvarnir sem munu taka gildi þann 14.ágúst næstkomandi. Fram kemur í tilkynningu að reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum verði rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum.

Tveggja metra reglan sem sett var mun almennt gilda áfram. Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja 2 metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu. Hjúkrunarheimilum, öðrum heilbrigðisstofnunum og sambærilegum stofnunum er gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilum og stofnunum.

Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki. Þá er áfram rík áhersla lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir og almennar smitvarnir með tíðum og reglubundnum þrifum þar sem fólk kemur saman.


Fram kemur í tilkynningunni að þær breytingar sem taki gildi 14.ágúst um takmörkun á samkomum séu í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis sem fram koma í minnisblaði hans til ráðherra frá 11. ágúst síðastliðnum. Hér að neðan má lesa um hvernig nýjum reglum er háttað.

Nálægðartakmörkun í framhalds- og háskólum

Í framhalds- og háskólum verður heimilt að hafa 1 metra á milli einstaklinga án þess að andlitsgrímur séu notaðar. Þar skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti minnst einu sinni á dag og áhersla skal lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Nálægðartakmörkun í íþróttum

Þrátt fyrir meginregluna um 2 metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða 2 metra regluna. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands skal setja sérsamböndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, meðal annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna.

Andlitsgrímur

Við aðstæður þar sem skylt er að nota andlitsgrímur líkt og skilgreint er í auglýsingunni skal aðeins nota grímur sem uppfylla kröfur evrópsku staðlasamtakanna (CEN) og hefur sóttvarnalæknir jafnframt sett nánari leiðbeiningar þar að lútandi.

Börn

Börn fædd árið 2005 eða síðar eru áfram undanskilin ákvæðum 3. gr. auglýsingarinnar sem snúa að fjöldatakmörkun og 4. gr. um almenna nálægðartakmörkun.

Breytingarnar sem hér um ræðir snúa einungis að takmörkunum á samkomum vegna farsóttar innanlands, en gildandi auglýsing fellur úr gildi 14. ágúst. Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra er einnig fjallað um mögulegar breytingar á fyrirkomulagi vegna skimana á landamærum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila