Á veffundi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og umferðaröryggisráðs, sem haldinn var í morgun um smáfarartækin í umferðinni, var fjallað um mikilvægi innviða, öryggi notenda og annarra vegfarenda og ávinninginn af notkun þeirra fyrir samfélagið.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði í opnunarávarpi sínu að á undanförnum árum hafi umtalsverðum fjármunum verið varið um land allt í samstarfi við sveitarfélög við að byggja innviði fyrir fjölbreytta ferðamáta þar sem að öryggi ferðalanga er í öndvegi.
„Örflæði er hugtak sem við notum fyrir umferð þessara smáu fararskjóta í stað enska hugtaksins „micromobility“. Í samgönguáætlun er áfram gert ráð fyrir fjárveitingum í innviði fyrir smáfarartækin til að tryggja örflæðinu öruggar brautir,“ sagði Sigurður Ingi. Ráðherra sagði ekki síður mikilvægt að vegfarendur gæti öryggi og væru sýnilegir með endurskin, ljós og hjálma. „Örflæðið er hljóðlátur og vistvænn ferðamáti sem er að auki heilsusamlegur og gefandi því fólkið á smáfarartækjunum fær meiri hreyfingu og G-vítamín þegar heilsast það mætist, brosir og spjallar jafnvel saman á rauðu ljósi,“ sagði hann.