Það er mikilvægt að halda áfram þeirri vegferð sem Framsóknarflokkurinn hefur hafið við að hlúa betur að börnunum í íslensku samfélagi og þeirra þörfum verði mætt betur en gert hefur verið hingað til. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Aðalsteins Hauks Sverrissonar sem skipar 2.sæti lista Framsóknarflokksins í Reykjavík Suður en hann var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag.
Meðal þess sem Aðalsteinn vill gera er að standa að því að börn fái kennslu í því hvernig eigi að fóta sig í stafrænum heimi og læri skynsamlega notkun á tölvum og tölvuleikjum. Hann segir að þetta megi síðan útfæra enn frekar og vera með markvissa kennslu í því hvernig umgangast eigi samfélagsmiðla. Einnig sé mikilvægt að kenna börnum hvernig nýta megi stafræna tækni til vinnu. enda miklir möguleikar í þeim geira. Nálgast þurfi þessi mál með mjög opnum huga.
Þá vill Aðalsteinn að börn hafi meira valfrelsi um fæðu í skólum, t,d þau börn sem eingöngu borði grænmeti geti fengið eitthvað við sitt hæfi. Hann segir þó ekki gagnrýni felast í þessum hugmyndum því í dag séu þeir sem standi að mötuneytum skólana sig vel en alltaf megi bæta það sem vel sé gert.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan