Verðbréf Twitter hafa lækkað um heil 17% síðan að fyrirtækið lokaði á Bandaríkjaforseta Donald Trump. Á mánudaginn fór verðið niður í 44,60 dollara þegar það var lægst en var 53,26 dollara 6. janúar. Jim Cramer skilgreinandi CNBC segir að verðbréfin geti lækkað enn frekar.
„Ég held að mjög margir vissu það að forsetinn var bókstaflega mikilvægasta persónan fyrirTwitter. Þú varðst að athuga hvað hann tísti og líka fólkið sem var að tala um hann. Og svo var þessi endalausa bylgja, netið eins og forsetinn skapaði það, og svo voru viðbrögð og gagnviðbrögð, þannig að ég held að óvænta útslagið við að fara á Twitter hafi að sjálfsögðu verið að forsetinn er horfinn!“
Trump hafði yfir 88 milljónir fylgjenda á Twitter og tíst hans voru þau áhrifaríkustu reiknað í umfjöllun, endurtísti, athugasemdum eða „likes“. Þá ræða fjárfestar að verð haldi áfram að fara niður vegna þess að notendur óttist sjálfir að verða ritskoðaðir eftir bannið á Trump.
Forráðamenn Twitter undirbúa enn víðtækari ritskoðanir á fjölda manns sem nota Twitter. Lekið hefur myndband af Vijaya Gadde yfirmanni Twitter sem segir að „við munum banna alla með samsæriskenningar.“ Þá hefur Jack Dorsey forstjóri Twitter flaggað á myndbandi að Twitter muni auka ritskoðunarígrip í stórum skala og loka á skoðanir sem ekki samrýmast stefnu fyrirtækisins.