Í dag er eitt ár síðan Adriana var skotin til bana aðeins 12 ára gömul en hún stóð við sjoppu og ætlaði að fá sér ís. Hún var óheppin, því í röðinni voru glæpamenn sem átti að drepa. Hvítur bíll ók fram hjá og 21 skoti var skotið úr hríðskotabyssu af gerðinni AK-47 að sögn Expressen. Skotið var úr tveimur byssum. Gefin var út handtökuskipun á fimm mönnum á alþjóðavettvangi, þrír þeirra eru taldir fela sig í Tyrklandi, einn náðist á Spáni og einn situr í varðhaldi í Svíþjóð. Og áður en málið er komið lengra, þá var harmleikurinn endurtekinn, þegar tvö systkini 5 og 6 ára börn, drengur og stúlka, voru skotin í Flemingberg fyrir rúmum tveimur vikum síðan.
Susanna Yakes móðir Adriana segir við sænska útvarpið: „Það var eins og að fá hnefa í magann, þau voru virkilega vernduð af englum.“ Hún er örvingluð eins og svo margir Svíar yfir öllu ofbeldinu og að ekkert gerist: „Eins og við var að búast reiddust nokkrir stjórnmálamenn en síðan hefur ekkert gerst. Þetta heldur áfram og þannig mun það halda áfram.“
Það vakti athygli, að daginn áður en Adriana var myrt, var tekin upp rapptónlistarmyndband þar sem morðvopnið sést, sem var í höndum mannsins sem drap Adriönu daginn eftir. A.m.k. 4 af þeim fimm grunuðu koma fram á tónlistarmyndbandinu og segir lögreglan að þeim hafi tekist að bera kennsl á þá grunuðu vegna myndbandsins. Þar sést líka hvíti bíllinn sem notaður var í skotárásinni og fannst seinna yfirgefinn í Sollentuna.