Könnun: Afgerandi meirihluti ósammála IKEA í Svíþjóð um að ekki eigi að nota orðið jól

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru ósammála IKEA í Svíþjóð um að ekki eigi að nota orðið Jól og nota eigi orðið vetrarhátíð þess í stað.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ert þú sammála IKEA í Svíþjóð um að hætta eigi að nota orðið jól og taka upp orðið vetrarhátíð í staðinn?

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 93,7%

Já 5,1%

Hlutlaus 1,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila