Ísland styður verkefni UNESCO um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum

Ísland hefur gerst aðili að alþjóðaverkefni Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum, IPDC (e. International Programme for the Development of Communication). Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir að um mikilvægt framlag sé að ræða sem nýtist í baráttunni við kórónuveiruna.

Í tilkynningu segir að samningurinn um fjögurra ára framlag Íslands til verkefnisins hafi verið undirritaður í París í gær, en framlag þessa árs nýtist í stuðning við fjölmiðlauppbyggingu í Afríku sem viðbragð við kórónuveirufaraldrinum. Unnur Orradóttir-Ramette, sendiherra Íslands í París, undirritaði samninginn ásamt Jean-Yves Le Saux, framkvæmdastjóra skrifstofu stefnumótunar hjá UNESCO.

Stuðningur Íslands við þetta mikilvæga verkefni um frjálsa fjölmiðlun í þróunarlöndum kemur á tíma þegar fjölmiðlar víða um heim eiga undir högg að sækja. Framlagið samræmist vel áherslum Íslands á sviði mannréttinda og er liður í viðbrögðum Íslands við kórónuveirufaraldrinum í þróunarríkjum,“sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í tilefni undirritunarinnar. 

Með öflugum fjölmiðlum er hægt að koma mikilvægum upplýsingum um einstaklingsbundnar sóttvarnir á framfæri og veita aðgang að fréttum og áreiðanlegum upplýsingum um þróun faraldursins. Slíkar aðgerðir eru mikilvægar til að hamla útbreiðslu veirunnar á viðkvæmum svæðum.“ 

Fram kemur í tilkynningu að stuðningurinn sé í samræmi við markmið þróunarsamvinnustefnu um uppbyggingu félagslegra innviða og sterkari innviði samfélaga. IPDC veitir fjölmiðlaverkefnum í þróunarlöndum stuðning, vinnur að fjölmiðlafrelsi og sjálfstæði, hjálpar til við uppbyggingu staðbundinna útvarps- og sjónvarpsstöðva, ásamt því að styðja við nútímavæðingu fjölmiðla. Þá segir að fjörutíu ár séu frá því að verkefnið var sett á laggirnar og hefur IPDC nú unnið að yfir tvö þúsund verkefnum í 140 þróunarríkjum. Það er jafnframt eini fjölþjóðlegi vettvangurinn innan Sameinuðu þjóðanna þar sem stutt er við uppbyggingu fjölmiðla í þróunarríkjum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila