Könnun: Fáir sammála ákvörðun Íslandsbanka um að sniðganga fjölmiðla vegna meints kynjahalla

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru ósammála þeirri ákvörðun Íslandsbanka að sniðganga þá fjölmiðla sem að mati bankans séu karllægir.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ert þú sammála þeirri ákvörðun Íslandsbanka að sniðganga fjölmiðla sem bankinn telur vera karllæga?

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 89,4%

Já 8,6%

Hlutlaus 2%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila