Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 varð við Vatnafjöll rétt fyrir hálffjögur í nótt. Talsverð skjálftavirkni hefur verið á svæðinu undanfarnar vikur.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að skjálftinn í nótt sé annar stærsti skjálftinn sem orðið hafa þar á undanförnum vikum en sá stærsti skjálftinn varð þann 11.nóvember síðastliðinn en hann var töluvert stærri en sá sem varð í nótt eða af stærðinni 5,2.
Þá segir í tilkynningunni að ekki er talið að skjálftinn í nótt hafi fundist í byggð.