Kallar eftir því að þingið komi saman vegna ástandsins

Inga Sæland formaður Flokks fólksins

Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur sent þingmönnum erindi þess efnis að þeir styðji við kröfu Ingu um að þing verði kallað saman vegna þeirrar stöðu sem upp er kominn vegna Covid faraldursins.

Í erindi Ingu til þingmanna segir meðal annars:

“ Ég kalla hér með eftir stuðningi ykkar til að kalla Alþingi saman til fundar eigi síðar en þriðjudaginn 3. ágúst n.k. vegna fjórðu bylgju Covid-19 faraldursins sem hefur verið í veldisvexti hér innan lands að undanförnu.Lagt er til að dagskrá þingfundar verði með þeim hætti að ráðherrar svari óundirbúnum fyrirspurnum, ásamt því að heilbrigðisráðherra flytji skýrslu um stöðu mála líkt og venjan var þegar fyrri bylgjur gengu yfir.“

Þá fer Inga í erindi sínu yfir stöðu faraldursins:

Staðan er grafalvarleg þar sem álag á starfsemi Landspítalans, eftir því sem smitum og um leið innlögnum fjölgar, er á hættustigi og hefur verið frá miðnætti þann 23. júlí síðastliðinn. „

Ingi minnir á í erindinu að þingið hafi fyrir skömmu verið kallað saman af minna tilefni, þegar þingið var kallað saman til þess að leiðrétta mistök sem gerð höfðu verið í lagasetningu.

Ég tel að ef einhvertímann hefur verið þörf á að kalla þingið saman og axla ábyrgð sem kjörinn fulltrúi þjóðarinnar, þá sé það nú í fordæmalausum heimsfaraldri Covid-19. “ segir Inga

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila