Tveir handteknir grunaðir um kannabisræktun í Árbæ

Tveir menn voru í vikunni handteknir í lögregluaðgerðum í Árbæ þar sem lagt var hald á 130 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Fram kemur í tilkynningu lögreglu kemur fram að annar mannanna hafi játað aðild að málinu.

Þá segir að lagt hafi einnig verið hald á fjármuni sem taldir eru vera ágóði vegna fíkniefnasölu. Rannsókn lögreglu á málinu miðar vel. Lögreglan vill minna á upplýsingasíma lögreglu 800-5005 en þar getur almenningu sett fram ábendingar um fíkniefnamisferli undir nafnleynd.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila