Mikill þrýstingur er á Austurríki vegna sífellds aukins fjölda farandfólks, sem kemur til landsins. Fram til ágúst höfðu meira en 56.000 hælisumsóknir komið inn og streymið hélt áfram í september. Hættan er að nýtt met verði slegið í fjölda farandfólks og þær verði meiri en í farandverkakreppunni árið 2015.
Hælisleitendastefna ESB hefur brugðist
Austurrísk yfirvöld hafa tekið eftir mikilli aukningu farandfólks, einkum við austurlandamæri landsins. Karl Nehammer kanslari og leiðtogi austurríska Alþýðuflokksins segir:
„Austurríki klyfjum hlaðið um þessar mundir, vegna ólöglegra fólksflutninga. Sá stuðningur sem við sýnum í Evrópu er óhóflega hár. Hælisleitendastefnan hefur mistekist. Enn er engin sterk vörn við ytri landamæri ESB og raunverulegi vandi hunsaður.
Þarf að efla landamærin
Margt af því farandfólki, sem kemur núna til Evrópu, á engan möguleika á að fá hæli og ástandið mun versna enn frekar. Austurríki gerir allt til að verjast flóðbylgju hælisleitenda. Nehammer segir:
„Ef landamæri Serbíu og Ungverjalands verða varin, þá eru okkar eigin landamæri einnig varin.“
Á leiðtogafundi í Serbíu mun kanslarinn hitta Aleksandar Vučić forseta landsins og Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands.
„Það er ekki seinna vænna, að við fáum nýtt hæliskerfi ESB, okkur vantar það – það er eina raunverulega og sjálfbæra lausnin. Við verðum að stöðva hina röngu fólksflutningastefnu.“