Karl á sjötugsaldri í haldi vegna skotárásarinnar í Hafnarfirði

Karlmaður á sjötugsaldri er í haldi lögreglu eftir aðgerðir hennar í og við fjölbýlishúsi á Miðvangi í Hafnarfirði í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Grunur leikur á að maðurinn, sem er íbúi í húsinu, hafi skotið á kyrrstæða bifreið sunnan megin við fjölbýlishúsið, en tilkynning þess efnis barst á áttunda tímanum í morgun. Sérsveit ríkislögreglustjóra var strax kölluð til vegna alvarleika málsins, en hún handtók manninn í hádeginu. Hann kom sjálfviljugur út úr íbúðinni og veitti ekki mótspyrnu við handtökuna.

Í tilkynningu lögreglu segir að rannsókn málsins sé á frumstigi og að ekki verði veittar frekari upplýsingar að svo stöddu. Þá vill lögregla benda á að atburðir eins og þessi geti vakið upp ótta og skapi vanlíðan hjá fólki og því vilji lögreglan benda á hjálparsíma Rauða krossins, 1717, en hann er opinn allan sólarhringinn.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila