Kína neyðir Covid-sjúka að bera rafræn armbönd svo þeir fari ekki út fyrir heimilið

Covid-sjúkir í Hong Kong eru af yfirvöldum settir í einangrun á heimilum sínum með „rafrænum armböndum“ sem sýna hvar þeir eru á hverjum tíma til að kom í veg fyrir að þeir yfirgefi heimilið (mynd sksk twitter).

Yfirvöld í Hong Kong halda fólki í sóttkví með rafrænum armböndum sem sýna staðsetningu viðkomandi

Business Insider segir frá því, að í Hong Kong krefjist svo kölluð heilbrigðisyfirvöld, að covid-sjúklingar séu í heimasóttkví og verða að nota rafræn armbönd til að koma í veg fyrir að þeir yfirgefi heimilið.

Lo Chung-mau, nýr heilbrigðisráðherra Hong Kong, sem tók við embætti 1. júlí tilkynnti um nauðungararmböndin að sögn Newsweek.

Hong Kong krafðist slíkra rafrænna úlnliðsbanda þegar árið 2020 ætlað fyrir fyrir ferðamenn sem átti að setja í sóttkví vegna Covid. En nýju reglurnar, sem taka gildi seinna í vikunni, gilda um alla.

Stjórnvöld í Hong Kong „mæla einnig með“ innleiðingu rafræns „heilsukóða“ sem útilokar PCR-jákvæða frá aðgangi að opinberum stöðum og krefst skyldusóttkvíar erlendra ferðamenna segir AFP. Þeir sem sýna jákvæða smitprófun fá „rauðan kóða“ og geta ekki heimsótt opinbera staði á meðan erlendir gestir fá „gulan kóða“ á meðan þeir dvelja í sóttkví.

Í febrúar sagði Lo Chung-mau, að Hong Kong yrði að halda sig við stefnu sína um núll smit. Að lifa með covid-19 „drepur okkur öll“ sagði hann skv. Newsweek.

Hong kong hefur einhverjar hörðustu kórónu-reglur sem um getur.

Sjá nánar hér

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila