Snemma á mánudagsmorgun réðust fjórir grímuklæddir menn á prentsmiðju The Epoch Times í Hong Kong í þeim eina tilgangi að eyðilegga eins mikið og þeir gátu. Réðust þeir á prentvélar og tölvur með sleggjum og brutu og brömluðu. Tóku þeir a.m.k. eina tölvu með sér þegar þeir fóru. Hong Kong útgáfa The Epoch Times er nú stöðvuð um ófyrirsjáanlega framtíð. The Epoch Times var stofnað af útlægum Kínverjum sem gagnrýna Kommúnistaflokk Kína og mannréttindabrot og þjóðarmorð í Kína. Þetta er í fimmta skiptið sem ráðist er á prentsmiðju fjölmiðilsins í Hong Kong á s.l. 15 árum. Eftir að Kína tók yfir Hong Kong hefur árásunum fjölgað og telja margir að kommúnistar standi að baki skemmdarstarfinu enda er þeim meinilla við skrif blaðsins. Fjölmargir einstaklingar og samtök um allan heim fordæma árásirnar, sem er beint gegn málfrelsinu í Hong Kong.
Stuðningsyfirlýsingar streyma að hvaðanæva úr heiminum
Stuðningsyfirlýsingar streyma að hvaðanæva úr heiminum til The Epoch Times og mjög margar frá Bandaríkjunum. Hér eru nokkur dæmi:
„Tjáningarfrelsið í Hong Kong er undir árás frá kínverska kommúnistaflokknum“ Jim Banks þingmaður USA
„Fréttir af árásum á frjálsa fjölmiðla eru þungt áhyggjuefni. Ég mun ætíð standa með íbúum Hong Kong og berjast fyrir frelsinu. Bandaríkin verða núna meira en nokkru sinni fyrr að berjast gegn yfirgangi kínverskra kommúnista sem leitast við að ná heimsyfirráðum.“ Rick Scott þingmaður USA
„Við fordæmum árásina á The Epoch Times í Hong Kong. Þegar ráðist er á fjölmiðla, sem varðveita upplýsingafrelsið, verður lífsnauðsyn þeirra enn augljósara. Það er skylda allra þjóða og borgara að styðja óháða blaðamennsku í heiminum.“ Javier Larrondo Calafat, hjá Lögmönnum fanga
„Það er ekkert prentfrelsi lengur í Hong Kong. Hong Kong er horfin.“ Hershöfðingi Robert Spalding
„Árásin á prentvélar The Epoch Times er hluti af alræðisyfirtöku Kommúnistaflokks Kína á Hong Kong. Einræðisherrum stendur ógn af sannleikanum og þess vegna eru þeir að reyna að hræða Epoch Times með því að ráðast ítrekað á skrifstofur þeirra. Blaðamenn Epoch Times eru hugrakkar og þrautseigar hetjur. Þeir munu halda áfram að afhjúpa illsku Kommúnistaflokks Kína sama hvað það kostar.“ Reggie Littlejohn forseti Réttindi kvenna án landamæra
„Enn eitt grimmdarverk framið af stjórnvöldum í Peking gegn lýðræði og frelsi. Að slík árás gæti gerst án meðvitundar kínverskra kommúnistayfirvalda er algerlega útilokað. Samhliða háþróaðri 21. aldar tækni notar Peking einnig gamaldags hundrað eða tvö hundruð ára aðferðir. Di Maio, utanríkismálaráðherra Ítalíu, verður að svara spurningu minni, hvers vegna Ítalía sat hjá við ályktun Sameinuðu þjóðanna, sem fordæmdi kúgun stjórnarandstöðunnar í fyrrverandi nýlendu Bretlands.“ Lucio Malan ítalskur þingmaður
„Rétt eins og bandamaður þeirra, Kommúnistaflokkur Kúbu, þá ritskoðar kínverski kommúnistaflokkurinn og ógnar málfrelsi borgaranna. Þegar þeir geta ekki þaggað niður í fólkinu með því að hræða það, þá nota þeir ofbeldið. Við sendum samstöðukveðjur til hugrakkra blaðamanna Epoch Times í Hong Kong. Aðeins með rödd og aðgerðum alþjóðasamfélagsins er hægt að stöðva kúgun alræðisvalds kínverska kommúnistaflokksins.“ Rosa María Payá, kúbanskur aðgerðarsinni
„Enn ein tilraun kínverska kommúnistaflokksins til að þagga niður rödd sannleikans í Hong Kong. Ég hafna og fordæmi allar árásir á málfrelsið og frjálsa fjölmiðla! Ég bið fyrir frelsiselskandi samferðarmönnum mínum, sem búa við kúgunarstjórn Kommúnistaflokks Kína. Megi þeir vera staðfastir og hugrakkir í leit sinni að sannleikanum!“ Brian Babin fulltrúi.
„Ef stjórnvöld í Hong Kong eiga einhvern trúverðugleika eftir og vilja sannfæra heiminn um að Hong Kong sé ennþá öruggt og tryggt samfélag, ættu þau tafarlaust að rannsaka málið og lögsækja þá, sem bera ábyrgð.“ Miles Yu, eldri félagi við Hudson Institute