Kínverski kommúnistaflokkurinn hefur sent lista með 14 atriðum til Ástralíu sem flokkurinn krefst að ríkisstjórn Ástralíu lagi, annars lokar Kína á innflutning alls varnings frá Ástralíu til Kína. Um þriðjungur útflutnings Ástralíu fer til Kína að sögn Epoch Times.
Hér eru atriðin sem ríkisstjórn Ástralíu má ekki gera:
- Rannsaka og stöðva vissar kínverskar fjárfestingar og kaup
- Loka Huawei og ZTE frá 5G-netframkvæmdum
- Setja lög um erlenda íhlutun sem er beint gegn Kína
- Neita vegabréfsáritun vissra kínverskra vísindamanna og menntamanna
- Reyna að blíðka Bandaríkin með því að leggja til að alþjóðleg rannsókn fari fram á covid-19
- Taka til máls í spurningum um Xinjiang, Hongkong og Taiwan og leiða „herferð“ gegn Kína á alþjóðafundum
- Segja frá aðgerðum Kína í Suður-Kínahafi í ræðum hjá Sameinuðu Þjóðunum
- Dreifa „bandarískum ruglandi áróðri“ um covid-19
- Rannsaka fjárfestingar í tengslum við Belti & Braut
- Kosta hugveitur sem dreifa „lygum“ um Xinjiang og kínverska íhlutun í því skyni að beina almenningsálitinu gegn Kína
- Rannsaka heimili kínverskra blaðamanna
- Ásaka Kína um tölvuárásir „án sannana“
- Að einstakir þingmenn gagnrýna Kommúnistaflokk Kína og stjórnunarkerfið
- Leyfa fjölmiðlum að stunda „fjandsamlega og mótbjóðandi“ fréttir um Kína sem eitrar samskipti ríkjanna
Meira en helmingur krafna kínverskra kommúnista fjallar um að banna málfrelsið og gagnrýni á kommúnismann sem stjórnmálastefnu og Kína sem fremsta talsmanns kommúnismans í heiminum.
Þar sem Ástralía er eitt háðasta land í heimi með útflutning til Kína má líta á aðgerðir Kína sem tilraun kommúnismans að knésetja heilt vestrænt ríki og láta samtímis reyna á samheldni og stuðning Vesturvelda við Ástralíu. Baráttan er um hvort kommúnisminn á að stjórna eða kapítalisminn. Þess vegna verður fróðlegt að fylgjast með framvindu málsins og hvernig Ástralíbúar bregðast við.
Kröfurnar má sjá á ensku hér að neðan