Kjarasamningar Eflingar við Reykjavíkurborg og ríkið hafa verið samþykktir af félagsmönnum Eflingar. Greidd voru atkvæði um hvort samþykkja ætti samningana og voru þeir samþykktir með 92% atkvæða.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir niðurstöðuna staðfesta að mikilvægt skref hafi verið stigið í leiðréttingu lægstu launa
„Niðurstaðan felur í sér staðfestingu á því að mikilvægt skref hefur verið stigið í leiðréttingu lægstu launa. Stoltust er ég af að hafa tekið þátt í því að auka virðingu og kjör láglaunakvenna í sögulega vanmetnum störfum. Þessir samningar eru sannarlega eftirtektarvert innlegg í baráttu láglaunakvenna fyrir að vera metnar að verðleikum. Um leið vil ég taka fram að baráttan heldur áfram. Næsti slagur felst í því að ná samsvarandi samningum fyrir félaga okkar hjá hinum sveitarfélögunum. Svo höldum við áfram að ryðja brautina fyrir betra lífi fyrir okkar fólk,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.