Könnun: 90% telja að biskup eigi að stíga til hliðar

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands.

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja að Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands eigi að stíga til hliðar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Á Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands að stíga til hliðar?

Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 90%

Nei 7%

Hlutlaus 3%


Alls voru greidd 787 atkvæði

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila