Könnun: Ætla ekki að ganga að gosstöðvunum á Reykjanesi

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu ætla ekki að ganga að gosstöðvunum á Reykjanesi. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Ætlar þú að ganga að gosstöðvunum á Reykjanesi?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 80%

Já 12,7%

Hlutlaus 5,2%

Er búin/n að fara að skoða gosstöðvarnar 2,1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila