Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu telja ekki rétt að bólusetja börn á Íslandi gegn veirunni. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Telur þú rétt að láta bólusetja börn á Íslandi vegna veirunnar? Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei 77,6%
Já 14,9%
Hlutlaus 7,5%